kosningalög o.fl.
Hæstv. forseti. Ég hef efnislega ekki miklu að bæta við framsögu hv. þingkonu Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, sem er framsögumaður nefndarálits stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um þessar breytingar á kosningalögunum. Eins og fram hefur komið er samstaða í nefndinni um þær örfáu breytingartillögur sem hér eru lagðar til. Frumvarpið rekur rætur sínar aðallega til framkvæmdaratriða er varða hina nýju löggjöf, kosningalagabálkinn, ef svo má að orði komast, sem tók gildi 1. janúar 2022 og hefur tekið, eðli málsins samkvæmt, tíma að innleiða þær miklu breytingar sem þar voru samþykktar með bæði sameiningu laga og öðru slíku.
Ég ætla að leyfa mér að segja hér, og ég hef áður sagt það, bæði í ræðustól Alþingis og í starfi hv. þingnefndar, að ég held að lexían af þessari stóru lagabreytingu, sem ég held að hafi verið algjörlega nauðsynleg, sé sú að við gefum okkur betri tíma til innleiðingar, þ.e. að þó að málið hafi verið afgreitt hér á hinu háa Alþingi þá sé framkvæmdarvaldinu gefinn betri tími til innleiðingar á grundvallarlöggjöf eins og kosningalögin eru. Það skiptir máli að vanda til verka og þær breytingar sem við höfum þurft að gera, stórar sem smáar, á þessum nýju lögum á undanförnum misserum segja okkur einfaldlega að það hefði þurft betri tíma til innleiðingar.
Ég skil samt þau sjónarmið að vilja taka í gagnið það sem þegar hefur verið samþykkt á hinu háa Alþingi og vil af þessu tilefni minna á, af því að það tengist óneitanlega umfjöllun um kosningalögin, að þegar gengið var til alþingiskosninga 25. september 2021 var kosið eftir gömlu löggjöfinni, eins og allir sem hafa kynnt sér málið muna væntanlega, og ýmislegt af því sem var í umfjöllun undirbúningsnefndar fyrir rannsókn á kjörbréfum það haustið, og ég átti þess kost að sitja í þeirri nefnd, hefur ratað inn í breytingar á nýju löggjöfinni þó að það sé ekki beinlínis það sem svona, hvernig á að orða það, stýrði viðbrögðum við talningarmálum í Norðvesturkjördæmi.
Mig langar að árétta hér hið mikilvæga hlutverk sem ný löggjöf felur landskjörstjórn. Landskjörstjórn hefur miðlægt hlutverk í framkvæmd kosninga, í fræðslu og upplýsingagjöf og það er mjög mikilvægt að löggjafinn búi þannig að landskjörstjórn að hún geti sinnt starfi sínu af þeim þunga og þeirri þekkingu sem til þarf.
Nú vitum við eftir umfjöllun um þetta frumvarp í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að það er verið að vinna samkvæmt áætlun að reglugerðarskrifum er fylgja nýju kosningalögunum. Þar eru, eins og kemur fram í álitinu, reglugerðir um umboðsmenn, réttindi og skyldur og einnig um kosningaáróður, leyfilegan og óleyfilegan, í nágrenni kjörstaða. Allt þetta þarf að vera þannig úr garði gert að öll þau sem starfa við kosningaframkvæmdina og einnig þau sem eru í framboði skilji reglurnar með sama hætti og að þær séu algerlega skýrar, orki ekki tvímælis og valdi ekki óþarfa ruglingi þegar til stykkisins kemur, eða ágreiningi.
Það má auðvitað benda á í þessu samhengi að það er kannski ekki endilega ákjósanlegt að íbúakosningarnar eigi heima í öðru ráðuneyti en því sem sér annars um kosningar, sem sagt dómsmálaráðuneyti, en þannig er tillagan. Ég skal segja það fyrir mig persónulega að ég er alveg tilbúin til að láta á það reyna að íbúakosningarnar heyri undir innviðaráðuneytið eins og sveitarstjórnarmálin yfir höfuð. Ég hlakka líka til að sjá hvort þessi létting í rauninni á framkvæmd íbúakosninga verði til þess að sveitarfélögin nýti þær meira og betur en hingað til hefur verið gert af því að til þess erum við að þessari breytingu, að gera þá nærtækara fyrir sveitarstjórnir að grípa til þess lýðræðistækis að setja einstök mál í dóm kjósenda og einnig þá auðvitað fyrir kjósendur að koma því í kring með undirskriftum og öðru slíku.
Mig langar líka að nefna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Ég hlýddi hér á andsvör áðan vegna kostnaðarskiptingar milli ríkis og sveitarfélaga og það er alveg rétt að það er umhendis í okkar stóru landsbyggðarkjördæmum fyrir sýslumannsembætti að halda úti atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Það verður auðvitað að vera skýrt að það sé gert með þeim hætti að kjósandi eigi, á þeim stutta tíma sem við gefum nú til atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, 29 dögum, þess kost að mæta og kjósa utan hefðbundins vinnutíma. Mér finnst mjög mikilvægt að það sé þannig og að þannig sé staðið að þeirri framkvæmd. Það var svo sem ekki annað að heyra frá sýslumannaráði og öðrum sem komu fyrir nefndina en að það sé að sjálfsögðu fullur vilji fyrir því að framkvæma þetta með þeim hætti.
Við ræddum þetta vel í nefndinni og við ræddum auðvitað líka um mál er varða sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fóru 2022 og atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í aðdraganda þeirra. Þar varð því miður misbrestur á upplýsingagjöf til kjósenda. Ég skil hvernig það getur gerst þegar það er mikill fjöldi framboða og kjósandi kemur til að kjósa í sveitarfélaginu sínu og gerir sér e.t.v. ekki grein fyrir því að sameiginlegir listar beri annan listabókstaf en flokkurinn eða framboðið sem viðkomandi kaus kannski síðast eða er vön að kjósa en þetta verður að vera í lagi. Það verður að vera þannig upplýsingagjöf í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar að það fari ekkert á milli mála hverjir séu í framboði í hverju sveitarfélagi eða í hverju kjördæmi.
Eins og hér hefur einnig verið nefnt er hér lagt til að færa hæfisreglurnar til fyrra forms. Það var augljóst í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga að þær höfðu verið gerðar of strangar fyrir okkar fámenna samfélag. Ég tel að sú breyting sem hér er lögð til sé til mikilla bóta og í rauninni tryggi einfaldlega hæfi en tryggi um leið að framkvæmd kosningarinnar sé ekki of flókin og að fólk geti sinnt því starfi þótt það tengist frambjóðendum með óbeinum hætti og að það reyni ekki á hæfið nema við úrskurð.
Hvað varðar næmisgreininguna þá fjölluðum við um hana ítarlega eins og fram kom í máli hv. framsögumanns, fjölluðum ítarlega um hana í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, og niðurstaðan varð að fella ákvæðið brott úr frumvarpinu að svo stöddu og að láta vinna það betur. Ég held að það hafi verið farsæl niðurstaða og treysti því að það verkefni njóti forgangs í dómsmálaráðuneytinu og að við fáum niðurstöðu sem við getum vonandi unnið með og afgreitt héðan í tæka tíð fyrir næstu alþingiskosningar.