breyting á ýmsum lögum til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Virðulegi forseti. Enn og aftur rekum við okkur á það, sem m.a. stóð í greinargerð með lögum um opinber fjármál á sínum tíma, að ríkisfjármálastefna er ekki í takti við hagsveifluna eða aðgerðir Seðlabankans. Ég verð að segja eins og er um þessar aðgerðir, og okkur greinir þar eðlilega á, að fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús, agnarsmá mús miðað við þessar aðgerðir. Það erum ekki bara við í Viðreisn sem gagnrýnum það að ekki sé verið að taka vandann nægilega alvarlega, við sjáum gagnrýni hagaðila, bara síðast grein í dag frá hagfræðingi Viðskiptaráðs. Það skýtur því skökku við þegar við heyrum mikið talað um frumjöfnuð á sama tíma og vaxtabyrði ríkisins er að þyngjast enn frekar. Mig langar líka til að vita hvað af tekjuöfluninni, sem hæstv. ráðherrar hafa verið að vera að státa sig af, lá ekki fyrir þegar fjármálaáætlun var kynnt. (Forseti hringir.) Skilaboðin með þessu frumvarpi eru alveg skýr en ég verð að lýsa yfir vonbrigðum með það að önnur skilaboð eru ekki nægilega skýr til að vinna á verðbólgunni.