breyting á ýmsum lögum til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Herra forseti. Ég sagði í orðaskiptum við hv. þingmann hér fyrr í þessari viku að gagnrýnin kæmi mér ekki á óvart og gagnrýnin hefði líka verið uppi þegar við réðumst í aðgerðir vegna heimsfaraldurs sem þá voru gagnrýndar fyrir að vera ekki nógu miklar. Sagan sýndi að þær skiluðu svo sannarlega árangri, skiluðu því að viðspyrnan hér varð gríðarlega hröð, skiluðu því að atvinnuástandið er mjög gott og umsvifin mikil þannig að ég vil halda því til haga. Ég vil halda því til haga, þó að einhverjum finnist óþægilegt að heyra það, að það að afkoman á frumjöfnuði verði 90 milljörðum kr. betri en gert var ráð fyrir fyrir örfáum mánuðum er ekki eitthvað sem er bara hægt að afgreiða eins og ekkert sé. Það sýnir traust á íslensku hagkerfi. Það sýnir að við erum á réttri leið. Ég vil líka minna hv. þingmann á að ein veigamesta athugasemd umsagnaraðila um fjármálaáætlun var mikilvægi þess að flýta gildistöku fjármálareglnanna. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Jú, við ætlum að láta þær taka gildi ári fyrr en áður var áætlað. Af hverju gerum við það? Jú, vegna þess að við höfum trú á íslensku hagkerfi. Við höfum trú á því að við séum að stefna á þann stað að við munum ná að uppfylla fjármálareglurnar fyrr en áður var talið vegna þess að við sjáum aðgerðir okkar í raun og veru bera árangur. Þar með er ég ekki að segja að verðbólgan sé ekki að bitna á fólki. Mér finnst bara mikilvægt að halda því til haga að óvissan um hversu lengi þetta ástand varir er auðvitað mjög erfið fyrir þau sem eru að gera sínar áætlanir í húsnæðismálum og öðru og þess vegna er svo mikilvægt að verðbólgan fari niður. En ég hef trú á því að þessi áætlun muni styðja við Seðlabankann í sínu verkefni. Verðbólgan mun fara niður og við munum sjá árangur á næstu mánuðum.