Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2023.

framboð háskólanáms fyrir fatlað fólk.

1110. mál
[12:09]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera hér til svara við mig og svara spurningum sem ég hef beint til hennar varðandi námsframboð á háskólastigi fyrir fatlað fólk. Það er auðvitað þannig að við viljum að allir eigi sömu tækifæri í okkar góða samfélagi. Því miður hafa tækifæri fatlaðs fólks ekki alltaf verið þau sömu og okkar hinna. Landssamtökin Þroskahjálp fóru af stað með herferð fyrir um ári síðan sem þau kölluðu Hvað er planið? Það er kannski það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um: Hvað er planið? Í áskorun sinni segja þau að þau séu að varpa ljósi á stöðu fatlaðra ungmenna þegar kemur að námstækifærum að loknu námi á starfsbrautum framhaldsskólanna. Ungmennin sem koma að herferðinni eiga öll sína drauma og þrár og deila þeim með okkur og þetta voru hjartnæmar og skemmtilegar sögur þegar listapúkinn og fleiri flottir einstaklingar tjáðu sig um sína drauma og tækifæri og hvernig þau vildu geta þroskað sín tækifæri en hvernig þau hafa því miður haft takmarkaða möguleika til nákvæmlega þess.

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er í gangi? Hvert er planið? Hvernig hyggjumst við tryggja að þessi frábæru ungmenni okkar sem hafa kallað eftir planinu hafi fjölbreyttari kosti þegar þau útskrifast af starfsbrautum framhaldsskólanna?