framboð háskólanáms fyrir fatlað fólk.
Frú forseti. Ég vil taka undir það að hér var mikilvæg fyrirspurn og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. 24. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fjallar um menntun. Hún er mjög gott leiðarljós til að fylgja þegar kemur að úrbótum í þessum málum og þeirra er svo sannarlega þörf. Ég vil ítreka að það er mikilvægt að horfa til þess að fatlað fólk er fjölbreyttur hópur sem hefur ólíkar þarfir til þess að geta fengið réttindum sínum til að komast í nám fullnægt. Mér finnst mikilvægt hvernig Þroskahjálp hefur haldið á lofti málum sinna umbjóðenda og við eigum að hlusta á það en við þurfum líka að skoða þetta í hinu stóra samhengi. Það snýr m.a. að því að við útrýmum aðgengishömlum vegna skerðinga annarra hópa að menntun.