framboð háskólanáms fyrir fatlað fólk .
Virðulegi forseti. Ég vil bara þakka fyrir þessa góðu umræðu og þær mikilvægu ábendingar sem hafa komið hér fram í umræðunni sem lúta sérstaklega að námsframboðinu en líka aðgengismálum í háskólanum og fleira. Þarna er einfaldlega verk að vinna og við höfum sett þetta skýrt af stað með því að gera samning við þrjá háskóla sem verður fylgt eftir þar sem við setjum upp ákveðnar kröfur og ákveðna lýsingu á því hverju við ætlum að ná fram á þessu ári. Við munum síðan fylgja því eftir áfram, enda trúi ég því að ef skólarnir taka höndum saman og við pössum að forgangsraða aðeins í því, að gæta að því að þessi hópur hafi sama aðgang að fjölbreyttu háskólanámi og um landið allt þá getum við verið mjög framúrskarandi þegar við berum okkur saman við aðrar þjóðir og verið jafnvel fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir varðandi hvernig háskólanám við erum að bjóða upp á fyrir fatlað fólk.