Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2023.

bann við olíuleit.

949. mál
[12:22]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Tilefni þessarar fyrirspurnar er það sem ég hef oft kallað uppáhaldssetning mín í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar þar sem kemur fram að ekki verði gefin út leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Þetta þykir mér sérstaklega vænt um vegna þess að rétt fyrir kosningar 2021 þá treysti meiri hluti þings sér ekki til að samþykkja frumvarp frá mér þess efnis heldur vísaði til ríkisstjórnar. Og eins og bestu hugmyndirnar þá skaut hún rótum í hugum fólks þar og skilaði sér í stjórnarsáttmála eftir kosningar.

Það hefur að vísu eitthvað staðið á sér að fá frumvarp frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til þess að festa almennilega rætur þessarar hugmyndar, að gera það fullkomlega skýrt að lögum að Ísland líti á allar hugmyndir um olíuleit sem arf fortíðar. Engu að síður þá er þessi yfirlýsing sterk og hún blæs fólki víða um lönd eld í brjóst vegna þess að þegar kemur að baráttunni við hamfarahlýnun þá vill fólk bara heyra góðar hugmyndir, vill heyra af löndum sem eru að taka rétt skref. Og þetta er eitt af þeim.

Mig langar því að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvernig hún hefur tekið þetta verkfæri, þessa setningu úr stjórnarsáttmálanum, og farið með á alþjóðavettvang og hvort íslenska ríkið hafi kannski möguleika til að stíga fastar inn á ýmis þau alþjóðlegu svið þar sem þetta er til umræðu. Það er t.d. í gangi svokallað aðgerðabandalag ríkja til að hætta gas- og olíuframleiðslu eða, með leyfi forseta, Beyond Oil and Gas Alliance sem var hleypt af stokkunum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow. Gæti íslenska ríkið hugsað sér að taka þátt þar nú eða að fylkja sér á bak við alþjóðasamning um bann við vinnslu jarðefnaeldsneytis, með leyfi forseta, The Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty, eða styðja hugmyndir um alþjóðlegan gagnagrunn um þekktar birgðir jarðefnaeldsneytis í jarðskorpunni? Hér sitja ríkisstjórnir oft eins og ormur á gulli á grundvallarupplýsingum um hvað gæti mögulega komið upp úr jörðinni. Það skiptir höfuðatriði að vita hvað við erum að fást við. Svo eru hugmyndir um að friðlýsa, alla vega tímabundið, norðurskautssvæðið. Þegar ísinn bráðnar viljum við ekki að allt í einu mæti ekki jarðýturnar heldur borarnir og botnveiðiskipin, hvort íslenska ríkið gæti stutt þær hugmyndir. Ég spyr síðan hvað ráðherra sjái fyrir sér að gera á leiðtogafundi um metnað í loftslagsmálum hjá Sameinuðu þjóðunum nú í haust, (Forseti hringir.) hvort íslensk stjórnvöld þurfi ekki að fara að segja vinum okkar í Noregi, í Bandaríkjunum og á Bretlandi aðeins til syndanna þegar þeir kynna hugmyndir um nýjar olíulindir (Forseti hringir.) á tíma þar sem það á bara ekki einu sinni að vera í boði.