bann við olíuleit.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Varðandi fyrstu spurninguna, hvernig því hafi verið fylgt eftir á alþjóðavettvangi sem segir í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, þá kemur það vissulega eftir atvikum fram í ræðum og umræðum í panelum og öðru slíku þegar spurt er um okkar stöðu. En ekki hefur verið talin sérstök ástæða til að fylgja ákvörðun okkar eftir á alþjóðavettvangi, enda var enginn að leita að olíu og lá ekki fyrir að beiðni um það væri á leið inn á borð ráðherra. Það var því pólitísk breyting en ekki efnisleg á okkar nálgun hvað það varðar. Í málsvarastarfi fyrir stefnu íslenskra stjórnvalda um orkumál er síðan auðvitað lögð áhersla á mikilvægi orkuskipta og markmið Íslands í loftslagsmálum.
Ég segi fyrir mitt leyti: Þegar ég ræði um orkuskipti þá nýti ég hvert tækifæri, sem mér finnst stundum skorta á í þessum þingsal, til að ræða samhengið á milli þess að ef við ætlum öll að hætta að nota jarðefnaeldsneyti — hætta að vera háð því og nota annað í staðinn og nota það sem við búum til úr náttúrunni með endurnýjanlegum hætti og grænni hætti — þá þarf sú orka að vera til staðar. Það er ekki staðan heilt yfir og þess vegna, varðandi spurningu tvö, höfum við ekki tekið ákvörðun um að vera aðilar að aðgerðabandalagi ríkja til að hætta gas- og olíuframleiðslu enn sem komið er. Á meðan við erum enn háð jarðefnaeldsneyti, og ekki bara við hér á Íslandi, og erum með stefnu um að hætta því, þurfum við að búa orkuna til einhvern veginn öðruvísi. Til þess þarf að raska náttúrunni vegna þess að öðruvísi er erfitt að búa til raforku með grænum endurnýjanlegum hætti. Og meðan við þurfum enn að reiða okkur á olíu, og löndin í kringum okkur, er varla gagnlegt að hvetja okkar helstu vinaþjóðir til að ákveða að hætta því og láta þannig alla framleiðslu sem enn er þörf fyrir í hendur ríkja sem oft og tíðum er síður hægt að treysta. Þörfin fyrir olíu er nefnilega ekki að minnka eins mikið og við myndum vilja.
Liður í baráttunni við loftslagsbreytingar á alþjóðavettvangi er m.a. að stofna til margvíslegs fjölþjóðlegs samstarfs um einstaka þætti loftslagsbreytinganna og t.d. Beyond Oil and Gas Alliance sem nefnt var. Ísland hefur ekki tekið beina afstöðu til fjölmargra þessara samstarfsvettvanga en skoðar þá eftir því sem kostur er og hvar áherslur Íslands liggja. En síðan er stefna íslenskra stjórnvalda að vera með virka þátttöku í alþjóðlegu samstarfi eins og kostur er frekar en að vera einungis þátttakandi í orði.
Hvað það varðar hvort stjórnvöld muni beita sér fyrir aðgerðum sem ráðast á framboðshlið jarðefnaeldsneytis í tengslum við leiðtogafund um metnað í loftslagsmálum, sem er í haust, þá er það forsætisráðherra sem verður fulltrúi Íslands á þeim fundi. Mér er ekki kunnugt um það á þessari stundu nákvæmlega hvert uppleggið verður á þeim fundi, það á eftir að ræða ítarlegar og nánar í ríkisstjórn. En að sjálfsögðu munum við fylgja stefnu stjórnvalda þegar kemur að þessum málum eins og öðrum. Um það hvort fulltrúar Íslands hafi komið á framfæri mótmælum við ríki eins og Noreg og Bandaríkin, sem hafa á undanförnum misserum veitt leyfi til leitar og vinnslu jarðefnaeldsneytis þvert á markmið Parísarsáttmálans, þá get ég ekki annað en a.m.k. nefnt að það hefur gríðarlega margt breyst í okkar umhverfi undanfarin misseri og við höfum séð ríki beinlínis hvetja til frekari olíuframleiðslu vegna breytinga í þá veru að ríki hafa tekið ákvörðun um að hætta viðskiptum við Rússland, hætta að kaupa olíu þaðan, sem er einfaldlega vara sem enn er mikil eftirspurn eftir. Við erum heldur ekki komin með nægt framboð af staðgönguvöru né tækni til að leysa alla olíunotkun af hólmi. Á meðan það er staðan þá verður einhver að vinna olíuna. Við kaupum okkar olíu, sem við erum enn háð, til að mynda frá Noregi. Ég myndi ekki vilja að íslensk stjórnvöld gætu ekki lengur — ekki það að það sé neitt inni í myndinni að það sé að fara að gerast — keypt af Noregi og þyrftu að leita eitthvert annað og lengra. Í tvíhliða samstarfi við ríki leggur Ísland áherslu á að ræða sameiginleg hagsmunamál og koma á framfæri helstu áherslum stjórnvalda í loftslagsmálum sem tengjast Parísarsamningnum og í tilfellum þar sem á vettvangi Parísarsamningsins koma upp ályktanir um sameiginlega eða fjölþjóðleg afstöðu til einstakra ályktana eru þær síðan skoðaðar hverju sinni.
Við tölum mjög skýrt í samræmi við stefnu okkar og utanríkisstefnu, þ.e. bæði innanlandsstefnu og utanríkisstefnu, um mikilvægi þess að við náum að fara í orkuskipti í öllum geirum samfélaga og (Forseti hringir.) náum þá að verða óháð jarðefnaeldsneyti. Staðreyndin er hins vegar sú að við eigum (Forseti hringir.) enn mjög langt í land og það eru annars vegar vinaþjóðir og hins vegar þjóðir sem deila ekki með okkur gildum sem framleiða þessa vöru og meðan það er þá eru þetta í mínum huga þættir sem verður að taka með inn í þetta mat.