bann við olíuleit.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Mér finnst kannski örla á smámisskilningi varðandi afstöðu þeirra alþjóðlegu vettvanga sem eru nefndir í fyrirspurninni vegna þess að þar er enginn að segja að það verði bara að hætta á morgun. Ráðherra hljómaði dálítið eins og að ef við myndum fara að hvetja Noreg til að hætta að framleiða olíu myndi rússnesk olía bara flæða yfir allt. Það er alls ekki það. Ríkin sem standa að baki þessum vettvöngum eru raunveruleikatengd. Beyond Oil and Gas Alliance er leitt af Danmörku og Danir eru engir bjánar, þeir átta sig alveg á því hvernig stórar kerfisbreytingar í veröldinni ganga fyrir sig og að þær taki tíma. Það er auðvitað rétt sem ráðherrann segir, að á meðan grundvallarinnviðir samfélagsins ganga fyrir jarðefnaeldsneyti þá mun þurfa að nota jarðefnaeldsneyti til að halda þeim innviðum gangandi. Það breytir því hins vegar ekki að við setjum okkur markmið um að hætta því og að við þurfum einhvern veginn að fylgja þeim eftir. Við getum ekki bara sett okkur þau markmið þegar við erum búin að fasa út jarðefnaeldsneyti. Við þurfum að gera það áður annars náum við aldrei árangri. Hvernig er t.d. með markmið ríkisstjórnarinnar um að ná kolefnishlutleysi 2040? Það er bara akkúrat svona, það er bara sett varða langt inn í framtíðina. Við vitum ekki nákvæmlega hvenær við náum að komast þangað en við þurfum að setja þessar vörður til þess að við stefnum eitthvert. Út á það ganga einmitt allar þessar alþjóðlegu aðgerðir að benda á það að við verðum að hemja framboðshliðina. Áður en innrásin í Úkraínu átti sér stað var ofboðsleg offramleiðsla á olíu. Plön olíuframleiðsluríkja um það magn jarðefnaeldsneytis sem á að dæla upp á næstu árum — ef þau fullnusta þau öll munum við fara margfalt fram úr þeim markmiðum sem við erum sammála um að ná samkvæmt Parísarsáttmálanum. Þess vegna verðum við að fara að tala við þessi ríki sem framleiða olíuna um að vera ekki að búa til óraunhæf markmið þar á sama tíma og (Forseti hringir.) við búum til raunhæf metnaðarfull markmið hinum megin. (Forseti hringir.) Hluti af því, og ég bið ráðherrann um að sofa á þessu yfir sumarið, er að styðja eitthvað af þessum alþjóðavettvöngum.