Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2023.

sjúkraflug.

1061. mál
[12:36]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Flugvélar eru burðarásinn í sjúkraflugskerfi landsins. Mýflug, sem hefur um árabil annast sjúkraflug innan lands, með aðsetur og miðstöð á Akureyrarflugvelli, fór 890 sinnum í sjúkraflug á síðasta ári og hafa ferðirnar aldrei verið fleiri. Til samanburðar voru ferðirnar 807 árið 2021 og hafði fjölgað frá árinu áður. Flogið var með 975 sjúklinga sem einnig er metfjöldi. Inni í þessum fjölda eru ekki tölur frá Landhelgisgæslunni en flugdeild Gæslunnar sinnti 156 útköllum vegna sjúkraflutninga í fyrra og höfðu þau heldur aldrei verið fleiri. Áfangastaður sjúkraflugs er í langflestum tilvikum Reykjavíkurflugvöllur þar sem sjúklingarnir eru í flestum tilvikum á leiðinni á Landspítalann.

Von er á 2,3 milljónum erlendra ferðamanna til landsins á þessu ári ef spár ganga eftir en lítil viðbragðsgeta er víða eins og birtist okkur í fjölmiðlum á undanförnum misserum. Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að bregðast við aukinni þörf sjúkraflugs samhliða þessari fjölgun ferðamanna? Hyggst ráðherra tryggja aðgengi sjúkraflugs að fjölförnum ferðamannastöðum í dreifbýli? Ef svo er, hvernig? Hæstv. ráðherra skipaði samráðshóp um sjúkraflug og gert var ráð fyrir að hópurinn skilaði ráðherra minnisblaði um framvindu og niðurstöðu í lok árs 2022. Ég spyr því: Hvaða niðurstöðum skilaði hópurinn um aukna aðkomu þyrlna að sjúkraflugi og hyggst hæstv. ráðherra bregðast við niðurstöðum hópsins?

Tilgangurinn með þessari umræðu hér er að vekja athygli hæstv. ráðherra og þingsins alls á ástandinu á sjúkraflugi í landinu. Á hverju ári eykst þörfin. Uppbygging sérhæfingar á einum stað á landinu og fjölgun ferðamanna er stór breyta í málinu og það verður að skoða alla þætti og hvernig þeir virka hver á annan. Þá lagði ég fram í fyrirspurn minni spurningu um aðgengi sjúkraflugs að Landspítalanum og hvernig hæstv. ráðherra ætli að tryggja það.

Ég nefni Reykjavíkurflugvöll í þessu samhengi af því að staðreyndin er sú að á meðan til umræðu er að þrengja að vellinum áður en annar kostur er tekinn í gagnið ógnar það uppbyggingu á landsbyggðinni. Langflest sjúkraflug lenda á Reykjavíkurflugvelli, eins og ég sagði áðan, til að njóta þeirrar sérhæfingar sem ákveðið hefur verið að byggja upp á Landspítalanum, spítala allra landsmanna. Það er ólíðandi að íbúar sem óumflýjanlega upplifa öryggi sínu ógnað þurfi að búa við þessa óvissu sem fylgir umræðunni þegar þrengt er að vellinum. Rannsóknir sýna að ungt fólk, sérstaklega konur, setur það fyrir sig ef aðgengi að heilbrigðisþjónustu er ekki tryggt þegar kemur að vali á búsetu. Auk þess fara mikilvægir líffæraflutningar á milli Norðurlandanna um Reykjavíkurflugvöll og þar skipta mínútur ekkert minna máli en í sjúkraflugi innan lands.

Virðulegur forseti. Hvar er völlurinn? Það verður að leggja algera áherslu á að íbúum á landsbyggðinni sé tryggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á Landspítala allra landsmanna. Að öðrum kosti verður ráðherra að skoða það af alvöru að byggja upp sterkari kjarna með sérhæfðri heilbrigðisþjónustu um allt landið. (Forseti hringir.) Það er lágmark að stjórnvöld sendi skýr skilaboð. (Forseti hringir.) Við viljum að landið allt sé í byggð og við munum tryggja öryggi, líf og limi íbúa sem velja að búa utan höfuðborgarsvæðisins.