Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2023.

sjúkraflug.

1061. mál
[12:40]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir að taka þessa umræðu upp og fyrir þessa fyrirspurn um sjúkraflug. Hv. þingmaður fór mjög vel yfir mikilvægi þess og aukna þörf, m.a. vegna vaxandi fjölda ferðamanna og fjölgunar, og þessar áskoranir sem við búum við í dreifbýlu landi. Ég ætla tímans vegna að reyna að halda mig við spurningarnar, það kann að vera að ég þurfi að svara einhverjum þeirra í seinni umferð.

Hv. þingmaður spyr fyrst hvernig ráðherra hyggist tryggja aðgengi sjúkraflugs að Landspítala. Fyrst vil ég segja að sjúkraflug hefur auðvitað aðkomu margra aðila sem bera ábyrgð á því að tryggja réttan sjúkraflutning á sem stystum tíma fyrir þau tilfelli sem á slíku viðbragði þurfa að halda, augljóslega. Sjúkraflug með þyrlu er yfirleitt svokallað fyrsta stigs viðbragð og sjúkraflug með sjúkraflugvél annars stigs viðbragð en í öllum tilfellum þá er það mikill kostur að lendingarstaður á áfangastað, Landspítala þá í þessu tilviki, sé sem næstur sjúkrahúsinu og það blasir við, og að leiðin sé greið. Í samræmi við samgönguáætlun til 2034 er unnið að því að Reykjavíkurflugvöllur þjóni áfram innanlandsfluginu meðan annar jafn góður eða betri kostur er ekki fyrir hendi, þannig að það sé alveg skýrt.

Varðandi lendingarstað þyrlu við Landspítala mælir heilbrigðisráðherra með þyrlupalli á eða fast við nýjan meðferðarkjarna með beina tengingu við bráðamóttöku eða annan móttökustað svo að hægt verði að flytja sjúklinga á börum beint úr þyrlu og á bráðamóttöku. Það mat er í takt við erlend viðmið um val á lendingarstað þar sem tekið er mið af klínískum þörfum sjúklings og nálægð við bráðamóttöku.

Í annan stað spyr hv. þingmaður hvort ráðherra hafi í hyggju að bregðast við aukinni þörf á sjúkraflugi samhliða fjölgun ferðamanna og ef svo er, hvernig. Einfalda svarið við þeirri spurningu er já. Eins og hv. þingmaður kom inn á er búið að vinna mikla vinnu með okkar besta fólki á þessum vettvangi og mjög gagnlegar tillögur í ágætri skýrslu sem þarf að vinna betur og útfæra. Útboð á sjúkraflugi er í undirbúningi þar sem tekið er mið af fyrirhugaðri fjölgun sjúkraflutninga til framtíðar, m.a. vegna ferðamanna.

Eins og hv. þingmaður þekkir hafa verið hugmyndir um tilraunaverkefni með sérhæfðri sjúkraþyrlu á Suður- og Vesturlandi. Sérhæfðri sjúkraþyrlu á þessu svæði er ætlað að létta á öðrum viðbragðsaðilum á svæðinu og koma inn með sérhæft viðbragð í bráðatilvikum. Ef slíkt verkefni verður að veruleika, sem vonandi verður sem fyrst, er mikilvægt að leggja upp með samvinnu við Landhelgisgæsluna sem sinnir í dag sjúkraflugi með þyrlu ásamt leit og björgun fyrir landið allt. Sérhæfð sjúkraþyrla á suðvestursvæðinu þar sem fjöldi alvarlegra slysa er mestur samkvæmt tölum gæfi þá tækifæri til að færa eina af björgunarþyrlum Gæslunnar á Norður- og Austurland. Það eru hugmyndir í þá veru þar sem lengi hefur verið kallað eftir auknu þyrluviðbragði til að efla öryggi þeirra sem þar dvelja á sjó og landi. Í því gæti þessi samvinna m.a. falist.

Hv. þingmaður spyr hvort ráðherra hafi í hyggju að tryggja aðgengi sjúkraflugs að fjölförnum ferðamannastöðum í dreifbýli og ef svo er, hvernig. Ég var að koma í svari við 2. lið fyrirspurnarinnar inn á sérhæfða sjúkraþyrlu og hugmyndir um hana. Hún myndi gagnast mjög vel sem viðbót inn í okkar kerfi og skipulag. En það verður auðvitað ærið verkefni og viðvarandi að auka og tryggja aðgengi að sjúkraflutningum um allt land. Þegar horft er til lendingarstaða og innviða og vægis þeirra sem öryggisflugvalla þarf að leggja mat á fjarlægð til veitanda heilbrigðisþjónustu ásamt möguleikum á flutningi sjúkra eða slasaðra með öðrum leiðum eins og vegsamgöngum. Starfshópur frá 2021 sem fjallaði um öryggishlutverk lendingarstaða lagði mat á hvern landshluta með tilliti til þess hvaða bjargir væru á svæðinu, hverjir væru veikleikar og hvaða úrbóta væri þörf þegar kemur að öryggi lendinga sjúkraflugs með flugvélum.

Mér sýnist ég hafa tíma til að bregðast við því sem upp á vantar í seinni umferð.