Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2023.

sjúkraflug.

1061. mál
[12:50]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Það er oft gott að taka bara undir með síðasta ræðumanni. Hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir sagði: Við þurfum aðgerðir strax, og það er bara þannig og okkur finnst hlutirnir ganga oft mjög hægt.

Ég vil ítreka þakkir fyrir þessa umræðu og innlegg hv. þingmanna hér sem eru mjög mikilvæg. Þetta er mjög mikilvægt og brýnt mál af þeim sökum sem hv. þingmaður fór vel yfir í sinni framsögu og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á þessar tölur sem við erum að sjá vaxa ár frá ári í sjúkrafluginu en minnir okkur á líka að það sem er gert er gert vel. Við þurfum þó að þétta þessa þjónustu, það er augljóst.

Ég lauk máli mínu hér áðan, hæstv. forseti, á því að fjalla um öryggishlutverkið og lendingarstaðina og starfshópinn frá 2021. Nú var ég að vísa í annan starfshóp sem er að taka það svolítið áfram, þá vinnu. Á þeim svæðum þar sem ferðamenn eru mjög margir er oft langt í næsta stað þannig að þar kemur til kasta flugs og jafnvel þyrlu og bjargir oft og tíðum við erfiðar kringumstæður. Það var tillaga hópsins að þörf væri til að mynda á að byggja upp lendingarstaði við Skaftafell og Fagurhólsmýri sem og sjúkra- og öryggisflugvöll.

Ég ætla að koma aðeins inn á spurninguna um niðurstöður samráðshópsins. Vinnan hvað þennan þátt varðar hefur fyrst og fremst miðast að því að stilla upp og skilgreina kröfur um viðbragð, þjónustustig um borð og tæknilega getu þyrlna og það er mjög mikilvægt að hafa það inn í framhaldið. Þá er lagt upp með forkönnun á möguleika á rekstri sjálfstæðrar sjúkraþyrlu miðað við uppgefnar kröfu með því að fela Sjúkratryggingum Íslands að leita tilboða. (Forseti hringir.)

Það er kannski við hæfi að enda á orðum hv. þm. Vilhjálms Árnasonar sem kom inn á það að Landhelgisgæslan er okkur mjög mikilvæg, sinnir sjúkraflugi ásamt leit og björgun fyrir landið allt og miðin ef því er að skipta. (Forseti hringir.) Við þurfum samvinnu við Gæsluna. Við þurfum líka að huga að sérfræðiþekkingunni sem er mikilvæg um borð og aðbúnaðinum fyrir sjúklingana og sérfræðingana okkar. (Forseti hringir.) Við eigum ekki að festast í umræðu um hver rekstraraðilinn er eins og hv. þingmaður kom inn á.