153. löggjafarþing — 120. fundur,  7. júní 2023.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Góðir landsmenn. Við förum hér yfir afrakstur þingstarfanna á tímum stjórnleysis undir forystuleysi óstöðugleikastjórnarinnar. Ríkisfjármálin eru algerlega stjórnlaus. Frá árinu 2015 hafa ríkisútgjöld meira en tvöfaldast í krónum talið. Þessi eina ríkisstjórn hefur aukið útgjöldin um 70% og í rauntölum, verðbólguleiðrétt, um þriðjung. Þetta á ekki vera hægt. Ein ríkisstjórn á ekki að geta aukið útgjöld þetta mikið, hvað þá miðað við að þau hafa ekkert til að sýna fyrir það, engan afrakstur sem heitið getur. Jú, þau nefna að heilbrigðismálin séu dýr, en hver er afraksturinn? Hafa biðlistarnir styst? Er kerfið betra? Það er ekki að sjá.

En nú telur ríkisstjórnin sig tilneydda til að kynna nýja aðgerðaáætlun gegn verðbólgu. Nýja segi ég, en þegar betur var að gáð reyndist þetta fyrst og fremst vera endurvinnsla mála sem lágu fyrir fyrir löngu síðan, jafnvel ári síðan í sumum tilvikum. Svo var bætt inn í uppfyllingarefni eða skemmtiefni, eftir því hvernig á það er litið, t.d. það að til standi að leggja aftur fram frumvarp um þjóðarsjóð, nú væri gott að geta safnað í sjóð. En það vill bara svo til að þegar þessi ríkisstjórn lýkur sér af verður hún búin að reka ríkið með samanlögðum halla upp á yfir 1.000 milljarða kr., yfir milljón milljónir, sem þýðir að næstu ríkisstjórnir til framtíðar, jafnvel þótt þær reki allar ríkið með afgangi, munu þurfa að skila, segjum 50 milljarða hagnaði, 50 milljarða afgangi, sem þótti nú býsna gott, með vöxtum í 30 ár. 30 ár til að borga niður hallarekstur einnar ríkisstjórnar.

Með öðrum orðum: Þessi aðgerðaáætlun er auðvitað bara plat, hún er sýndarmennska. Munið þið eftir þjóðarhöllinni, kosningahöllinni sem var kynnt hérna rétt fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík ásamt borgarstjóranum og einhverjum ráðherrum? Svo var sýningin endurtekin og sagt að hún ætti að klárast akkúrat rétt fyrir kosningarnar, næstu alþingiskosningar. Það hefur ekkert til þessara þjóðarhallar spurst eftir að fjármálaáætlun kom fram, enda var þetta bara sýning.

Sýndarmennskan er þó líklega hvergi eins ráðandi og í húsnæðismálum. Hvað ætli hafi verið haldnar margar kynningar um tugþúsundir nýrra íbúða? Þar er auðvitað verðbólga eins og í öðru og þeim fjölgar alltaf og fjölgar nema í raunveruleikanum. Samkvæmt raunveruleikanum fækkar nýbyggingum íbúða um 69%. Það hjálpar ekki til að borgin vilji bara byggja á einhverjum þéttingarreitum með það að markmiði að fækka bílum og grænum svæðum í borginni, en ríkisstjórnin er hjálpa til við þetta, heldur betur. Hún tók að sér að fjármagna helsta kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík um borgarlínuþéttinguna og heldur áfram að vinna með borginni að þessu markmiði um færri bíla og þéttari reiti, t.d. með því að leggja auknar álögur á fólk á ferð, vegfarendur, en einnig með því að leggja nýjar álögur á þá sem gætu hugsað sér að ferðast með flugi. Ríkisstjórninni er nefnilega ekki bara illa við að fólk sé mikið að þvælast á bílum, henni er meinilla við að fólk sé að fljúga of mikið og ætlar þess vegna að taka þátt í því með Evrópusambandinu að leggja nýja ofurskatta á flug, en státar sig af því að hafa fengið afslátt í tvö ár þannig að þetta sé allt í lagi. Þau verða löngu farin í önnur störf þegar afslátturinn gildir ekki lengur og bara þeir efnameiri geta ferðast með flugi.

Í heilbrigðismálum ruglar ríkisstjórnin saman, eins og í mörgu öðru, útgjöldum og árangri. Kerfið hefur ekkert lagast. Enn er verið að senda sjúklinga til útlanda þótt það sé miklu dýrara af því að það tekst ekki að laga kerfið hér eða er ekki vilji til þess. Þau reyndar minna okkur á að Landspítalinn, nýr Landspítali, sé mjög dýr, sem hann vissulega er, það vissum við en við vissum líka að hann yrði margfalt dýrari en þau héldu fram og nú er það komið á daginn, vegna þess að menn horfa ekki til framtíðar. Ef menn hefðu tekið ákvörðun um það að reisa nýjan spítala, fullbúinn, glæsilegan, hagkvæman spítala á nýjum stað hefði þetta allt gengið svo miklu betur.

Talandi um byggingarframkvæmdir: Stjórnmálamenn hafa áratugum saman lagt áherslu á mikilvægi þess að fjölga iðnnemum og iðnmenntuðu fólki á Íslandi og allt í einu var unga fólkið tilbúið og kom og sóttist eftir því að komast í iðnnám. En hvaða svör fékk þetta unga fólk? Við höfum ekki peninga, það er búið að eyða þeim í annað eða stendur til að eyða þeim í annað. Mörghundruð ungmennum vísað frá iðnnámi vegna þess að þessi ríkisstjórnin flytur út sjúklinga og borgar með þeim og segir: Við verðum bara að flytja inn iðnaðarmenn. Af því að hún hefur ekki efni á því að mennta þá hér, búin að eyða peningunum í allt annað.

Það vantar alla framtíðarsýn og hvergi er það eins áberandi og í hinu fullkomna stjórnleysi sem ríkir hér á sviði hælisleitenda. 20 sinnum meiri aðsókn er í að koma til Íslands sem hælisleitandi en til Danmerkur hlutfallslega og á þessu ári verða líklega fleiri einstaklingar sem koma hingað heldur en til Danmerkur. Viðbrögðin eru engin, hvað sem líður stöku áhyggjuröddum innan stjórnarliðsins, önnur en þau að ýta frekar undir þetta og jú, bregðast við með því að leyfa notkun iðnaðarhúsnæðis og skrifstofuhúsnæðis undir flóttamenn, hælisleitendur. En það mun ekki duga til. Fyrir vikið er búið að kynna áform um að byggja flóttamannabúðir á Íslandi en eitthvað er það viðkvæmt þannig að við eigum víst að kalla þetta, hvað var það, skjólgarða til að fela innihaldið.

Svona er stjórnleysið ríkjandi alls staðar. Ríkisstjórnin hefur sig ekki einu sinni í að útskýra hlutverk ríkissáttasemjara. Það er ekki nema von að það sé erfitt að fá menn til að gegna því starfi. Í byggðamálum, í landbúnaði, ég tala nú ekki um í orkumálum. Það eina sem við vitum um framhaldið þar er að öll sú nýja orka sem kann að verða til eigi að fara í orkuskipti, engin orka um fyrirsjáanlega framtíð í nýja verðmætasköpun, ný verkefni. Það má ekki einu sinni nefna olíu og gas, betra að láta Sádi- Araba og Rússa sjá um það frekar en að byggja upp atvinnulíf á Norður- og Austurlandi. Og ríkisstjórnin nýbúin að samþykkja það að 20 manna nefnd í Brussel eigi að leggja línurnar um það hvað teljist góð fjárfesting á Íslandi og hvað ekki. Þetta er allt eftir þessu, en kannski má ég ekki segja það, enda stendur til að setja landsmenn alla í endurmenntun, á námskeið um hvernig þeir eigi að hugsa og tjá sig. Skiljanlegt við þessar aðstæður, það er ekki gott að fá gagnrýni við þessar aðstæður en við þessar aðstæður þarf gagnrýni vegna þess að það er hægt að gera þetta allt svo miklu betur. En til þess þarf breytt stjórnarfar á Íslandi.