Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Ríkisstjórn á flótta undan sjálfri sér er ekki líkleg til að leiða þjóðina og íslenskt efnahagslíf út úr þeirri stöðu sem nú er uppi. Ég verð þó að hrósa ríkisstjórninni fyrir þinglokin sem nú hefur verið samið um, fyrir það að gefast upp á sjálfri sér. Það var virðingarvert og til bóta fyrir land og þjóð.
Þingflokkur Miðflokksins hefur lagt ríka áherslu á andstöðu við nokkur mál á þessu þingi. Fyrst ber að nefna bókun 35 og svo þingsályktunartillögu forsætisráðherra um hatursorðræðu. Þessu til viðbótar lögðumst við gegn því að ný heildarlöggjöf varðandi sóttvarnir yrði afgreidd án þess að greining hefði farið fram á áhrifum þeirra aðgerða sem gripið var til í gegnum Covid-faraldurinn. Tvö mál til viðbótar sem við í þingflokki Miðflokksins töldum ekki tæk til afgreiðslu voru annars vegar sameining allra héraðsdóma landsins í einn og svo frumvarp innviðaráðherra um undanþágu frá skipulagslögum til að auðvelda að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem sagt að auðvelda uppsetningu flóttamannabúða í stað þess að takast á við vandann, takast á við að laga kerfið. Sennilega er sú ríkisstjórn sem nú situr ekki fær um það og á meðan springur kostnaðurinn út og verður beinn kostnaður ríkissjóðs á þessu ári um 15 milljarðar og raunkostnaður örugglega tvisvar eða þrisvar sinnum sú upphæð. Við eigum að taka vel á móti þeim sem við bjóðum hingað og styðja við aðlögun þeirra að íslensku samfélagi en við eigum ekki að reyna að gera allt fyrir alla. Slíkt mun alltaf enda með ósköpum.
Hvað þessir fimm þingmál varðar, sem ég hef nú nefnt og Miðflokkurinn lagðist sérstaklega gegn, er skemmst frá því að segja að þau daga öll uppi. Því ber að fagna.
Virðulegur forseti. Í ljósi þess þunnildis sem ríkisstjórnin kynnti sem framlag sitt í baráttunni við verðbólguna í byrjun vikunnar og forsætisráðherra lýsti sem svo í viðtali að það væri bara meira en að segja það að auka sparnaðinn um 20 milljarða, nýbúin að auka ríkisútgjöld um hartnær 200 milljarða, er ekki sanngjarnt annað en að benda á nokkur atriði sem gætu orðið að gagni. Í því sambandi vil ég nefna í fyrsta lagi borgarlínu, frestun og endurmat framkvæmda 20 milljarðar í heildina, þar af 4 á næsta ári. Í öðru lagi ná stjórn á landamærum landsins, 10 milljarðar á ári. Í þriðja lagi loftslagskirkjan, 2 milljarðar á ári og vaxandi. Í fjórða lagi Ríkissjónvarpið, 2 milljarðar á ári. Í fimmta lagi óskilgreind atkvæðakaup ráðherra, 2 milljarðar á ári.
Ágæta ríkisstjórn. Hér eru komnar tillögur að 20 milljarða niðurskurði útgjalda á næsta ári, ofan á þá tæpu 18 milljarða sem ríkisstjórnin náði saman um. Verst er að af þessum 18 milljörðum ríkisstjórnarinnar eru 14,5 óútfærð framtíðarmúsík, fuglar í skógi. Það var kúnstugt að í kynningu ríkisstjórnarinnar á efnahagstillögum sínum sagði að nú ráðist ríkisstjórnin í enn frekari aðgerðir til að vinna gegn verðbólgu. Enn frekari aðgerðir var sagt og í framhaldinu er eðlilega spurt: Þá enn frekari aðgerðir en að auka ríkisútgjöld um 193 milljarða á milli ára? Hefði ekki verið ágætt að byrja á að hemja útgjaldavöxtinn, svona í því ljósi að 9. júní 2022, fyrir sléttu ári síðan, birtist frétt á vef Stjórnarráðsins undir fyrirsögninni „Aðgerðir gegn þenslu og verðbólgu“? Ríkisstjórninni var því ljóst á þeim tíma að hér væri allt á leið í bál og brand. En hvað var gert? Jú, 193 milljörðum var kastað í arininn. Er nema furða að verðbólgubálið logi?
Virðulegur forseti. Á stundum sem þessum er það beinlínis skylda okkar stjórnmálamanna, og þá sérstaklega þeirra sem stýra för, að fara vel með skattfé, draga úr útgjöldum þar sem hægt er að endurskipuleggja verkefni, fækka verkefnum hins opinbera þar sem það er hægt og tryggja að aðhaldsþörf hvers tíma sé mætt með minna bákni, minni ríkisumsvifum, en ekki alltaf með aukinni skattheimtu. Í hverju málinu á fætur öðru kemur fram með hvaða hætti kerfið er á sjálfstýringu og báknið þenst út.
Virðulegur forseti. Á meðan staðan er sú að stjórnvöld hafa undirgengist regluverk í loftslagsmálum sem gæti orsakað að milljarðatugir renni úr ríkissjóði Íslands í ríkissjóði landa sem standa sig verr í loftslagsmálum en við gerum, á meðan skilaboðin inn á húsnæðismarkaðinn valda því að það dregur úr byggingu íbúðarhúsnæðis en bætir ekki í, á meðan staðan er sú að áform um 4.000 nýjar íbúðir á ári hljóma eins og súr brandari, á meðan lífeyrisþegar og eldri borgarar fá skilaboð um 10% skerðingu réttinda á sama tíma og stjórnvöld treysta sér ekki til að nýta auðlindir landsins til að standa undir þeim stoðkerfum sem við viljum halda úti og aukinni velsæld í landinu, á meðan þetta er staðan þá gæti þrautagangan fram á haustið 2025, þegar límið í ráðherrastólunum losnar, orðið okkur löng og ströng.
Góðir landsmenn. Ég vona að þið njóti sumarsins og lofa því að Miðflokkurinn mun hér eftir sem hingað til spyrna við fótum þegar þörf er á og koma fram með hugmyndir og lausnir á þeim vandamálum sem að steðja. — Góðir landsmenn. Njótið sumarsins.