153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

tollfrelsi á vörum frá Úkraínu.

[11:27]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra hefur verið ötull talsmaður þess að styðja málstað Úkraínu með ráðum og dáð. Nú er það svo að ekki stendur til að framlengja tollfrelsi á vörum frá Úkraínu eins og var og hefur verið síðastliðið ár. Ég vil því spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvers vegna það er ekki framlengt.