153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

tollfrelsi á vörum frá Úkraínu.

[11:28]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Fyrst vil ég segja að sú ákvörðun sem við tókum hér í þverpólitískri sátt og mikilli samstöðu, bæði í ríkisstjórn og á þinginu, um að fella brott tolla á landbúnaðarafurðum frá Úkraínu, skipti máli og var bæði mikilvæg og táknræn. Það hefur aðeins borið á þeirri umræðu að eingöngu hafi verið um táknrænan stuðning að ræða en hann var ekki eingöngu táknrænn og það stóð skýrt að það var ekki eina markmiðið með breytingunni. Ísland var eina EFTA-ríkið sem tók þessa ákvörðun. Liechtenstein er auðvitað í tollabandalagi með Sviss og tekur þar af leiðandi ekki sjálfstæðar ákvarðanir hvað þetta varðar og Noregur ákvað að gera það ekki. Það var hins vegar Bretland sem þarna fór fyrst af stað og Evrópusambandið fylgdi á eftir.

Ég gerði mér að sjálfsögðu vonir um að við myndum halda þessum stuðningi áfram og mér finnst ekkert ósanngjarnt eða óeðlilegt að einhver umframáhrif á ákveðna geira innan landbúnaðarins séu mögulega skoðuð af einhverri yfirvegun. En það kallar á vinnu og sú vinna þarf þá að fara fram. Ég lít á þessa beiðni Úkraínumanna sem heilbrigða sjálfsbjargarviðleitni. Úkraínumenn eru ekki sérstaklega að kalla eftir matargjöfum, þeir eru að kalla eftir því að fá tækifæri til að stunda viðskipti og keyra sitt efnahagslíf á, að ég tel, um 30% afköstum.

Auðvitað er málið á forræði þingsins og ég gerði mér væntingar um að efnahags- og viðskiptanefnd myndi leggja málið fram. Það eru vonbrigði að það hafi ekki tekist. (Forseti hringir.) Ég ætla ekki að útiloka að okkur takist að finna einhverja leið til að halda þessu áfram en það er ljóst að það verður ekki hér og nú. Það verður þá ekki fyrr en í haust sem mér finnst ekki mikill sómi að. Ég segi það bara fyrir mitt leyti að öllum má vera ljóst hver mín afstaða er í þessu.