tollfrelsi á vörum frá Úkraínu.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra segir að þetta hafi ekki eingöngu verið táknræn aðgerð og það er svo sem rétt. En þá mætti nú færa rök fyrir því að þetta sé nú frekar táknræn aðgerð ef við hættum við um leið og það fer að kosta eitthvað. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra út í grein sem samflokksmaður hæstv. ráðherra, hv. þm. Birgir Þórarinsson, skrifaði í Bændablaðið þar sem hann ver þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar með vísan í hagsmuni íslensks landbúnaðar og að við þurfum að verja íslenskan landbúnað frá þessari — ja, táknrænu aðgerð nú. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Er hún þá ósammála sjónarmiðum hv. þingmanns eða telur hún að þau eigi rétt á sér?