153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

tollfrelsi á vörum frá Úkraínu.

[11:31]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Fyrst vil ég nú segja að ég hef ekki lesið umrædda grein en get þó svarað því, eins og ég nefndi áðan, að mér þykir ekkert óeðlilegt eða ósanngjarnt að það sé reiknað út og vegið og metið ef það eru einhver stórkostleg áhrif á eina atvinnugrein. Ég nefni þó að í maímánuði jókst innflutningurinn mjög og málflutningur um að það sé einhvern veginn nýja línan og verði áframhaldandi finnst mér alls ekki sjálfsögð lína, vegna þess að við þekkjum það að þegar frestir eru að renna út þá flytur fólk meira inn og geymir. Við vitum líka að innflutningur á alifuglakjöti — stærstur hluti frosins kjúklings sem er seldur hérlendis kemur að utan. Það er svolítið eins og talað sé um að hér sé eingöngu um íslenskan kjúkling að ræða sem þú kaupir úti í búð og svo komi úkraínskur kjúklingur. Það er auðvitað ekki þannig. Stór hluti frosins kjúklings sem þú kaupir úti í búð kemur frá útlöndum.

Og aftur: Úkraínska þjóðin er að kalla eftir vopnasendingum, pólitískri samstöðu, afstöðu og skýrum orðum (Forseti hringir.) og þessu viðskiptafrelsi og stuðningi til að keyra sitt efnahagslíf. (Forseti hringir.) Við getum ekki sent þeim vopn en við getum sett fjármagn í sjóði sem síðan geta keypt vopn. (Forseti hringir.) Við höfum verið algerlega skýr og gengið mjög langt í pólitískri samstöðu og afstöðu. (Forseti hringir.) Við gerðum þetta og ég hefði viljað að við hefðum gert það áfram.

(Forseti (BÁ): Forseti vill minna á að ræðutími er takmarkaður bæði í fyrirspurnum og svörum; tvær mínútur í fyrra sinni og ein mínúta hið síðara sinni.)