153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

aðgerðir í loftlagsmálum.

[11:33]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég spyr: Hvert erum við að stefna í loftslags- og mengunarmálum? Erum við á einhverri vegferð þar sem við ætlum að leyfa ákveðnum aðilum að keppa um það að þeir fái bronsverðlaun fyrir það að vera heimskir, silfurverðlaun fyrir að vera heimskari og gullverðlaun fyrir að vera heimskastir í því að finna upp aðferðir til þess að segjast vera að hætta að menga? Því að á sama tíma og við erum að sigla með ruslið okkar til Evrópu og látum brenna það þar þá stendur til að safna eitruðum lofttegundum frá Evrópu, setja þær í tankskip og sigla með til Íslands. Þau eru að vinka hvort öðru þarna á leiðinni í menguninni á skipunum — með okkar mengun út og evrópska mengun hingað. Og hvað ætlum við að gera við þessa evrópsku mengun? Jú, við ætlum að dæla henni niður í jörðina; 3 milljónir tonna við Straumsvík, og við ætlum að nota til þess 75 milljónir lítra af vatni eða 2.500 lítra á sekúndu. Það eru áhyggjur af því að við séum að valda súrnun. En hvernig getur okkur dottið í hug og hvernig getur það verið réttlætanlegt að taka hreina vatnið okkar á Íslandi, blanda í það koldíoxíði frá Evrópu, eitraðri lofttegund, og dæla því undir byggðina í Hafnarfirði, liggur við, undir vatnsbólin og segja: Heyrðu, þetta er bara frábært? Og hverjir eiga að borga þetta? Það hlýtur að vera almenningur vegna þess að það kemur skýrt fram að allur svona kostnaður lendir alltaf á almenningi og lendir verst á þeim sem minnst hafa.