aðgerðir í loftslagsmálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er kannski ákveðinn misskilningur þarna á ferðinni. Í fyrsta lagi þá er það okkar markmið að nýta verðmætin sem eru í draslinu okkar og við höfum mjög mikið verk þar að vinna. Því meira sem við nýtum nær okkur, því betra. Þar þurfum við að gera nákvæmlega það sama og við gerðum í sjávarútveginum. Um það bil helmingnum af sjávarafla í heiminum er hent en við, Íslendingar, nýtum nærri allt saman og mikið af því sem við hentum áður er orðið verðmætara en það sem við höfum alltaf nýtt. Sama þurfum við að gera með verðmætið sem er draslið okkar. Varðandi það sem hv. þingmaður spyr um, sem er Carbfix; það er tækni sem er ekki eins og er víða þar sem menn setja CO2 í geymslur heldur gengur hún út á það, sem hefur verið sannreynt að er hægt, að búa til grjót úr því með því að dæla því niður í jörðina, eins og hv. þingmaður vísaði til. Ef menn fara þá leið, sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um, ég er með sérstakan hóp sem er að skoða þetta og þessi viðskipti, þá munu þeir borga fyrir það sem það gera. Og þetta er gert. Það er ekki spurning um það að almenningur eða skattgreiðendur greiði fyrir eitthvað slíkt heldur þvert á móti, þetta er tekjuöflun. Það sem forsvarsmenn Carbfix eru að leggja áherslu á er að þeir fái tekjur af þessu. Þetta er svipað eins og með tækni sem við erum líka með, tækni fyrirtækis sem heitir Running Tide, þeir eru að rækta þörunga sem gleypa CO2 og það er í sjónum. Þetta er tækninýjung sem menn eru að koma með. Ef þetta verður með þessum hætti, sem ekki er komið á hreint, að það verði eitthvað flutt inn, myndu þeir sem það gera borga ríkulega fyrir það.