aðgerðir í loftslagsmálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en hann gleymir að nefna að uppi við Hellisheiðarvirkjun var, þegar best lét, verið að dæla niður 1.000 tonnum en þarna erum við að tala um 250.000 tonn. Og það voru jarðskjálftar uppi á Hellisheiði sem voru tengdir þessari niðurdælingu. Við getum ímyndað okkur hvernig það verður að dæla öllu þessu magni niður rétt undir Hafnarfjörð. En ráðherra nefndi Running Tide. Þeir ætla að fleyta húðuðu kurli í flothylkjum við sjó á Íslandi og sökkva þeim til botns, og það á að vera varanlegt. Þeir eru að tala um að það vanti á heimsvísu 6–10 milljarða tonna til að farga. Ég segi bara: Guð hjálpi okkur ef þetta á að vera framtíðin og ég vona heitt og innilega að við förum líka að taka á aflátsbréfum. Áður fyrr var hægt að kaupa sér syndaaflausn eftir á, eftir að búið var að fremja glæpinn, en núna er hægt að kaupa slík bréf áður en búið er að menga, sem er stórfurðulegt og við þurfum að taka á því.