153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

aðgerðir í loftslagsmálum.

[11:39]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er þannig að náttúran er að fanga CO2 og sú tækni sem Running Tide er með er að flýta fyrir því náttúrlega ferli. Tré fanga t.d. CO2. Hv. þingmaður gæti því allt eins sagt: Hvað eruð þið að gera með það að fara í skógrækt og landgræðslu vegna þess að það er verið að fanga CO2? Er það ekki eitthvað hræðilegt? Það er ekkert hræðilegt. Það er ekkert að því að stunda landgræðslu og skógrækt á Íslandi þó að menn þurfi að fara varlega í því.

En bara af því að ég er kominn hingað upp, virðulegur forseti, þá hefði ég viljað að hv. þingmaður og aðrir — já, förum kannski í það á eftir. Ég vona að ég fái fleiri spurningar.