loftslagsgjöld á flug.
Virðulegur forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. utanríkisráðherra er varðar „Fit for 55“-kerfi Evrópusambandsins og regluverk þeirra er varðar skattlagningu á flugi sem mikið hefur verið til umræðu undanfarið. Minnisblað frá utanríkisráðuneytinu var lagt fyrir umhverfis- og samgöngunefnd nýlega, 31. maí nánar tiltekið, þar sem farið er yfir stöðu málsins. Minnugur þess með hvaða hætti blaðamannafundur hæstv. forsætisráðherra og Ursulu von der Leyen gekk fram langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra um það sem fjallað er um í samantekt minnisblaðsins, þar sem segir: Þó að náðst hafi saman um aðalatriðin á enn eftir að hnýta lausa enda. Ef hæstv. ráðherra gæti í stuttu máli farið yfir hver meginatriðin eru sem standa út af.
Hitt atriðið sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um er: Það kom skýrt fram í máli Ursulu von der Leyen, á þessum fundi í ráðherrabústaðnum forðum, að þær losunarheimildir sem yrðu veittar samkvæmt þessu samkomulagi á árunum 2025 og 2026 yrðu að dreifast jafnt og með sanngjörnum hætti á milli flugfélaga sem þýðir væntanlega að þær gangi með sambærilegum hætti til allra þeirra félaga sem stunda flug til og frá landinu, hvar sem rekstrarleyfi viðkomandi aðila liggur. En í þessu samhengi langar mig út frá jafnræðinu að spyrja út í þriðja atriði minnisblaðsins, sem hér er hnykkt á, þar sem segir: Sama sérlausn og Malta og Kýpur fengu varðandi 100% endurgreiðslu á verðmuninum á öllu vistvænu flugvélaeldsneyti og venjulegu eldsneyti. Ef hæstv. ráðherra gæti stuttlega útskýrt í hverju þessi sérlausn felst. Er heildarkostnaðurinn metinn og hver ber þá þann kostnað? Eru það þá sömu sjónarmið sem gilda, að slíkur stuðningur þurfi að falla jafnt til allra félaga hvers lenskt sem félagið er eða hvar sem flugrekstrarleyfið liggur?