153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

loftslagsgjöld á flug.

[11:42]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Varðandi orðalagið um að það eigi eftir að klára útfærslu á ákveðnum atriðum og hnýta lausa enda þá er svarið t.d. það sem hv. þingmaður spurði síðan um, þ.e. þetta eru almenn skilyrði, almenn undanþága, þannig að eitt af því sem þarf að skrifa út er, vegna þess að gæta þarf jafnræðis, hvernig eigi að deila þessum losunarheimildum. Þessi undanþága er auðvitað fengin vegna fjarlægðar Íslands við meginlandið og þar með eru allir flugleggir almennt lengri. Þau flug sem eru til og frá landinu eru náttúrlega að meiri hluta til frá íslenskum félögum þannig að það fer þá aðeins eftir því hvernig skilyrðin eru skrifuð hvernig þessum losunarheimildum er deilt. Það er það sem við eigum eftir að gera vegna þess að okkar málflutningur, sem fallist var á, gengur auðvitað út á samkeppnishæfni flugvallarins og þeirra flugfélaga sem héðan fljúga og þá erum við fyrst og fremst að vísa til íslenskra flugfélaga. En varðandi Kýpur og Möltu undanþáguna, sem líka á við um okkur, þá gengur hún út á að til þess að flýta fyrir frekari framleiðslu á eldsneyti, sem í dag er miklu dýrara en það eldsneyti sem verið er að nota, þá er mismunurinn greiddur til að það séu frekari hvatar og það borgi sig að fara í þá framleiðslu á meðan verið er að ná kostnaðinum niður. Það er Evrópusambandið sem mun greiða þann mismun, ekki íslensk stjórnvöld og ekki flugfélögin að sjálfsögðu. Sú undanþága mun líka eiga við um okkur þannig að vonandi leiðir það af sér að það verði frekara framboð af þessu eldsneyti vegna þess í dag er það auðvitað sáralítið, sem var hluti af okkar málflutningi.