153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

loftslagsgjöld á flug.

[11:46]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Já, það er réttur skilningur að það felst enginn umframkostnaður á íslensk stjórnvöld í því að niðurgreiða þennan mismun vegna þess að við munum ekki niðurgreiða hann, Evrópusambandið hefur tekið það á sig. Hluti af því að ná þessum markmiðum er að þetta inngrip þurfi af hálfu Evrópusambandsins til þess að það borgi sig. Það flýtir líka fyrir frekara framboði á þessu eldsneyti. Ég segi: Ekki bara er þetta ekki kostnaður fyrir okkur heldur felast í þessu efnahagsleg tækifæri, kærum við okkur um það, þ.e. til þess að framleiða þetta eldsneyti þarftu mikla orku. Það sem ég hef aðeins áhyggjur af er að það tapast mikil orka í framleiðslunni þannig að þegar svona verkefni keppa við önnur verkefni, sem eiga líka að fela í sér orkuskipti, þá munu önnur verkefni mögulega rata ofar á listann vegna þess að þú nýtir orkuna betur þar en þú gerir til þess að framleiða rafeldsneyti. Það eru mínar áhyggjur. Ég leyfi tæknifólki og markaðnum að finna út úr því.

En í þessu geta legið mikil efnahagsleg tækifæri fyrir okkur, þ.e. förum við sjálf í það að framleiða rafeldsneyti fyrir okkar flota en sömuleiðis bara til útflutnings. (Forseti hringir.) Ef ekki, þá getum við líka flutt það inn. Það eru formsatriði sem þarf að afgreiða og svo fer þetta sína leið. Það á eftir að koma hérna inn í þingið og það liggur fyrir hvaða atriði við fengum í gegn fyrir sameiginlegu EES-nefndinni. Þannig að ég geri ráð fyrir því að það muni ganga upp.