153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

stuðningur við Úkraínu.

[11:47]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Í dag eru 470 dagar frá því að rússnesk stjórnvöld gerðu ólöglega innrás í Úkraínu með það að markmiði að ljúka hernámi alls landsins. Það hefur ekki gengið eftir, þökk sé samstöðu og úthaldi úkraínsku þjóðarinnar og stuðningi aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins. Engum blöðum er um það að fletta að hernaðarstuðningur Vesturlanda hefur skipt sköpum í þessu ömurlega stríði. Hörmungarnar ríða ekki við einteyming í Úkraínu. Fyrr í vikunni rofnaði Nova Kakhovka-stíflan í Dnípró-ánni með þeim afleiðingum að mörg hundruð ferkílómetrar af landi eru undir vatni í Kerson-héraði, fólk flýr heimili sín þúsundum saman, skortur er á drykkjarvatni og landbúnaðarland liggur undir skemmdum. Íbúar beggja vegna árinnar þurfa aðstoð og það strax.

Eins og staðan er í dag er ekki gott að sjá hvort og þá hvernig stríðinu muni ljúka og innganga Úkraínu í NATO og aðild að ESB eru enn fjarlæg markmið. Ríki heims, ekki síst Evrópuríki, horfa því fram á langvarandi aðstoð við Úkraínu. Flest hafa heitið því að hún vari eins lengi og þörf krefur en nú er farið að reyna á úthaldið, kostnaðinn og hinn pólitíska vilja.

Í erlendum miðlum má lesa um hugmyndir fyrrverandi framkvæmdastjóra NATO um að einhver aðildarríkjanna styðji baráttu Úkraínu með beinum hætti, t.d. með því að senda hersveitir til landsins. Af þessu tilefni vil ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra tveggja spurninga. Sú fyrri er hvort Ísland muni ekki örugglega veita aðstoð til að bregðast við neyðarástandinu í Kerson-héraði vegna stíflurofsins. Hin síðari varðar stöðuna innan NATO með tilliti til langvarandi stuðnings Úkraínu og hvernig hún muni beita sér fyrir hönd íslenskra stjórnvalda til að tryggja þann stuðning.