153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

stuðningur við Úkraínu.

[11:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða fyrirspurn sem mér finnst mikilvægt að komi hér reglulega fram og ég fái tækifæri til að segja það skýrt og nota tækifærið til að þakka fyrir þann mikla þverpólitíska stuðning við Úkraínu hér á þinginu frá öllum flokkum, allra handa stuðningi, hvort sem það er varnartengdur stuðningur, efnahagslegur stuðningur, mannúðartengdur stuðningur og sömuleiðis auðvitað gagnvart móttöku á fólki sem þaðan er að flýja. Það er rétt að það er viðvarandi verkefni og við ræðum það mikið innan NATO og annars staðar, viðvarandi verkefni okkar stjórnmálamanna allra, en ég hef líka notað hvert tækifæri til að segja það sama við viðskiptalífið sem allt byggir á því að þetta kerfi haldi. Það er sameiginlegt markmið að halda samtalinu gangandi vegna þess að ef við missum umboðið til að halda áfram að styðja, þá er voðinn vís. En það sem a.m.k. Noregur og Danmörk hafa gert, og ég hef nefnt við utanríkismálanefnd og vil mjög gjarnan fara af stað með, er að setja á fót hóp til að forma stuðning til handa Úkraínu til langs tíma. Það hafa Norðmenn og Danir gert. Þar er ég að hugsa að nýta þann þverpólitíska stuðning sem nú er og búa okkur undir það að sá stuðningur lifi allra handa pólitískar þreifingar innan lands á næstu árum, kosningar og annað slíkt sem mun á endanum koma að. Þegar næstu kosningar verða hér þá liggur fyrir að við munum áfram þurfa að styðja við Úkraínu. Það er lengri tíma verkefni. Meðan ég er í þessum stól mun ég nýta hvert einasta tækifæri til að segja það hátt og skýrt að Ísland mun taka fullan þátt í allri mögulegri aðstoð sem við getum sinnt og það sama geri ég innan NATO, innan Atlantshafsbandalagsins, í öllum ræðum og samtölum og það skiptir verulegu máli að þessi lína haldi eins lengi og kostur er. Það þýðir líka (Forseti hringir.) að við þurfum að eiga þetta samtal við almenning. Hér á Íslandi erum við enn þá mjög heppin. Það er ekki staðan alls staðar. (Forseti hringir.) En það er sameiginlegt verkefni að þessi lína sé algerlega skýr og um hana sé samstaða.