153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

stuðningur við Úkraínu.

[11:52]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra skýr svör. Og það er rétt, þverpólitískur stuðningur við þær aðgerðir sem þörf er að grípa til vegna stríðsins í Úkraínu er algerlega nauðsynlegur. Umboðið verður að vera skýrt og ég ber þá von í brjósti, eins og utanríkisráðherra gerir greinilega líka, að við höldum áfram að vinna á þeim grunni hér á hinu háa Alþingi. Það er auðvitað rétt að það þarf að hafa stuðninginn þverpólitískan og hann þarf að lifa af kosningar, eins og það var orðað. En þá víkjum við kannski að því máli sem hér hefur áður verið rætt í morgun. Það varðar niðurfellingu á tollum á landbúnaðarvörur frá Úkraínu. Ég heyrði nefnilega hæstv. ráðherra fullyrða að efnahags- og viðskiptanefnd ætlaði ekki að leggja fram áframhald á bráðabirgðaákvæðinu. Mínar upplýsingar segja mér að þessu máli sé ekki lokið, þ.e. umfjöllun um það í nefndinni. (Forseti hringir.) Ég velti fyrir mér hvort hæstv. ráðherra hafi kannski tekið of stórt upp í sig vegna þess að ég kannast ekki við það að nefndin sé komin að þessari niðurstöðu.