stuðningur við Úkraínu.
Forseti. Fyrst varðandi stuðninginn þá vildi ég nefna að auðvitað skiptir máli að halda samtalinu gangandi við almenning. En það skiptir líka máli um leið að tala skýrt. Það er góð staða fyrir mig að vera í að geta gert það og finna fyrir þverpólitískum stuðningi til að gera það því að það skilar sér allt til samfélagsins. Það er því gríðarlega mikilvægt. Við sjáum það í könnunum að stuðningur hjá almenningi gagnvart ákveðnum stuðningi til handa Úkraínu, eins og varnartengdum stuðningi, er meira að segja meiri en hann var í byrjun. Það gerist ekki af sjálfu sér og það gerist ekki eingöngu vegna þeirrar sem hér stendur heldur vegna þingsins alls.
Varðandi síðara atriðið þá átti ég hreinlega við þetta: Nú erum við væntanlega að ljúka þingstörfum á morgun og þar sem ekkert mál hefur borist frá nefndinni núna geri ég ráð fyrir að slíkt verði ekki afgreitt fyrir þessi þinglok. En ég alhæfi ekki og vona að nefndin muni finna leið til að leggja fram mál þótt það gerist ekki fyrir þessi þinglok. Þótt það sé bagalegt að það komi eitthvert bil á milli (Forseti hringir.) þá er ekki útilokað að hægt sé að tryggja áframhaldandi stuðning.