153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

niðurfelling undanþágu fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[11:57]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég hjó eftir því að hann vísar aftur til myndatöku með forseta Úkraínu og gerði það líka í umræðunni hér í gær fyrir hönd síns þingflokks, Viðreisnar. Ég ætla nú að leyfa mér að segja það bara alveg skýrt að þegar gefið er í skyn að sú vinna sem ég hef innt af hendi fyrir hönd, ekki bara ríkisstjórnarinnar heldur þingsins og í umboði almennings, að það einhvern veginn snúist um að ná mynd af sér með því fólki sem er að berjast fyrir sínu lífi og landamærum og framtíð sinna barna — ég veit ekki hvort hv. þingmaður veit ekki meira um það sem við höfum lagt á okkur til að taka skýra afstöðu eða hvort hann viti það en ákveði að nota þetta — þá vil ég segja að mér þykir ekki mikill bragur á þessari nálgun, vegna þess að líklega svona 98% af því sem ég hef gert í mínu embætti snýst um að öllum sé ljóst hvar Ísland stendur þegar kemur að stuðningi við úkraínsku þjóðina. Við höfum leitað mjög skapandi leiða til þess að sýna þann stuðning í verki og við höfum nýtt hvert einasta tækifæri til að sýna þann stuðning í orði. Þetta er mjög vel metið af úkraínsku þjóðinni, úkraínskum stjórnvöldum, eftir þessu er tekið og ég ætla að fullyrða að orðspor Íslands gagnvart því hvar við stöndum þegar kemur að þeim gildum sem við deilum og við áttum okkur á að við byggjum tilverurétt okkar á hefur líklega sjaldan verið sterkari.

Hins vegar næst einfaldlega ekki samstaða um það eins og sakir standa með hvaða hætti eigi að framlengja þetta mál. Ég hefði viljað að við hefðum getað komið því í frekari umræðu hérna á þinginu. Þetta mál er auðvitað utanríkispólitískt mál en það er samt ekki á mínu borði. Ég get ekki lagt fram frumvarp til að framlengja þetta. Þannig að á sama tíma og ég hef sagt mjög skýrt hvar ég stend í þessu máli þá kæri ég mig ekki um að það sem við höfum gert sé talað niður eða að það sé einhvern veginn hægt að líta svo á (Forseti hringir.) að nú sé orðinn einhver vafi á því hvar Ísland stendur í stuðningi við Úkraínu. Það er enginn vafi á því. En aftur: (Forseti hringir.) Ég vona að hægt sé að finna áframhaldandi leið til að styðja við viðskiptafrelsi Úkraínu þannig að þau geti selt sínar vörur og neytendur notið góðs af.