niðurfelling undanþágu fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Herra forseti. Það er rosalega lítið mál að lýsa yfir stuðningi við þjóð sem er undir sprengjuregni ef það reynir aldrei á stuðninginn. Stuðningurinn verður aldrei sannur og tær, aldrei beint frá hjartanu, ef fjárhagslegir hagsmunir setja eitthvert þak á. Ef það er tjón á einhverjum ákveðnum sviðum samfélagsins þá ætlum við að hætta stuðningnum. Það er núna verið að vinna í málamiðlun um stuðninginn. Við þurfum að finna málamiðlun um stuðninginn. Þetta er ekki skilyrðislaus stuðningur. Þetta er í ósamræmi við það sem íslenskir ráðamenn hafa sagt, það sem hæstv. utanríkisráðherra hefur sagt. Þegar því er haldið fram að ekkert sé hægt að gera af því að málið sé ekki á borði hæstv. utanríkisráðherra þá má benda á að það er verið að vísa fingrinum á hæstv. fjármálaráðherra, formann Sjálfstæðisflokksins, sem er þá í lófa lagið að leggja fram málið. Ég ætla að kalla aftur eftir því að við hér í þinginu séum upplýst um það (Forseti hringir.) hverjir það eru sem standa í vegi fyrir því að stuðningur Íslands við Úkraínu sé óbifandi, líkt og segir í Reykjavíkuryfirlýsingunni.