153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

niðurfelling undanþágu fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[12:01]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Þegar ég segi að málið sé ekki á mínu borði er ég ekki að beina fingri að fjármálaráðherra eingöngu. Málið var á fyrra stigi í höndum þingsins og nefndin lagði það fram og um það var samstaða allra flokka og nefndarinnar í heild sinni. Það er í höndum Alþingis að framlengja það. Ég legg málið ekki fram sjálf. En hins vegar er alveg ljóst að þegar um er að ræða svona mál þá þarf að ríkja um það samstaða og sú samstaða liggur einfaldlega ekki fyrir. Ég ætla ekki að útiloka að hægt sé að vinna þannig að málinu að hægt sé að ná einhverri lendingu í því hér á þinginu og innan flokka. Ég segi bara aftur: Mér þykir miður að ekki hafi verið hægt að klára málið fyrir þessi þinglok. Mér þykir miður að við getum ekki fundið leiðir. (Forseti hringir.) Það er þá hægt að koma með einhverjar aðrar aðgerðir eða mótvægisaðgerðir, eða hvað það er sem þarf, til að mæta þessum áhyggjum. (Forseti hringir.) Fyrst þarf kannski að komast almennilega að því hver staðan raunverulega er. (Forseti hringir.) En ég vil að öllum sé ljóst hver mín afstaða er og að ég hefði viljað halda þessu áfram.