samstaða um stuðning við Úkraínu.
Virðulegur forseti. Ég sit í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég taldi og hef talið að málið væri til meðhöndlunar þar, til meðferðar þar, og þess vegna kom það flatt upp á mig að hlusta á hæstv. utanríkisráðherra halda því fram að þetta væri bara afgreitt mál. Ég hef ekki orðið var við að búið væri að afgreiða þetta mál í nefndinni. Ég óskaði eftir því fyrir einhverju síðan að málið yrði sett á dagskrá í framhaldi af því að bréf barst frá Bændasamtökunum um kjúklingaframleiðendur. Þá kom berlega í ljós að ágreiningur var í meiri hlutanum um hvort það ætti að halda þessu áfram eða ekki. Ég óskaði eftir því að þetta yrði tekið til meðferðar og formaður nefndarinnar tjáði mér að þetta væri í vinnslu. En mál sem er í vinnslu hlýtur að skila einhverri afurð og ég bara bíða eftir þeirri afurð, hver sem hún verður. Það þarf að koma til afgreiðslu á málinu í nefndinni áður en við förum að segja af eða á.