153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:05]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er svo erfitt þegar fólk talar án geranda, notar setningu þar sem kemur ekki fram um hvern er að ræða. Hæstv. ráðherra segir að ekki hafi náðst samstaða um að sýna úkraínsku þjóðinni áfram stuðning með því að leyfa tollfrjálsan innflutning á landbúnaðarvörum. Ekki hafi náðst samstaða, en á milli hverra? Hvaða hóp erum við að tala um? Hér höfum við séð fulltrúa frá nánast allri stjórnarandstöðunni stíga í pontu og kalla eftir þessari framlengingu. Samstaðan sem ekki næst er í stjórnarliðinu. Við skulum hafa það alveg á hreinu. Ég sé ekki betur en að við hin séum öll til í að halda þessum stuðningi áfram. Það er stjórnarliðið sem nær ekki saman um að sýna úkraínsku þjóðinni samstöðu. Það er stjórnarliðið sem kemur hingað í pontu og segir: Við ætlum að gera allt sem við getum til að standa með Úkraínu í þessu stríði. Við ætlum að gera allt, bara ekki þetta. (Forseti hringir.) Það er óheiðarleg framsetning. Og að tala hér í pontu (Forseti hringir.) eins og allt þingið sé undir þegar það er bara stjórnarliðið sem stendur gegn úkraínsku þjóðinni í þessu máli, það er ekki heiðarleg framsetning.