153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:07]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Eftir að fréttatilkynning ríkisstjórnarinnar var send út á mánudag, um að fyrsta útgáfa fjármálaáætlunar yrði jafnframt endanleg, hefur einhvern veginn verið þannig loft hér í húsinu að ekki er hægt að komast hjá því að greina djúpstæða óhamingju innan stjórnarliðsins. Ég ætla að leyfa mér að setja þessi tvö mál í samhengi. Eftir að fjármálaáætlunin var afgreidd með þeim hætti sem við okkur blasir kemur forsætisráðherra í fjölmiðla og talar um að það sem sé merkilegast við þennan þingvetur sé að stjórnarliðar ætli að fara í sumarfrí á tilsettum degi. Það hafi ekki verið vert að fara inn í erfið mál á þessum tímapunkti. Aldrei þessu vant eru erfiðu málin ekki á milli stjórnarandstöðu og stjórnarliðs. Það er þessi djúpstæða óhamingja meðal stjórnarliða sjálfra sem gerir það að verkum að öllum (Forseti hringir.) stjórnarfrumvörpum hefur verið hent út af borðinu til þess að rýma megi húsið fyrir þá óhamingjusömu fjölskyldu (Forseti hringir.) sem ríkisstjórnarliðið er.