153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:08]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Forseti. Ég held að það sé ekki bara mér sem er verulega misboðið við það hvernig ábyrgðinni er kastað yfir á þingið þegar allir vita að ef ráðherrarnir sameinast um mál þá fara þau í gegn. Ég ætla því að leyfa mér að vonast til þess að þeir stjórnarþingmenn og þeir ráðherrar sem hafa þá skoðun að stuðningur við Úkraínu sé andlag einhverrar málamiðlunar, að þau þurfi að standa í einhverjum hrossakaupum til að stuðningur okkar sé ekki bara í orði heldur líka á borði, geri þingheimi kunnugt um þá afstöðu sína. Mér finnst það ekki ósanngjörn krafa vegna þess að þetta er svo sérstakt mál. Þetta er ótrúlega mikið tilfinningamál fyrir þjóðina. Við erum stolt af því að styðja við þau gildi sem er verið að verja í Úkraínu með mannslífum. Þegar þetta er svona, að eitthvert þjark í stjórnarliðinu kemur í veg fyrir þennan stuðning, þá finnst mér að þingheimur og þjóðin öll eigi rétt á því að vita um hvað málið snýst. (Forseti hringir.) Hvað er verið að semja um? Hvers virði má stuðningur okkar vera án þess að sérhagsmunaöflin fari á límingunni?