samstaða um stuðning við Úkraínu.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að mér brá aðeins hér áðan þegar hæstv. utanríkisráðherra talaði eins og það væri bara engin leið að sameinast um áframhaldandi tollfrelsi fyrir Úkraínumenn fyrir þinglok. Mér brá vegna þess að málið hefur verið til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd og þeirri umfjöllun er ekki lokið. Hins vegar fannst mér hæstv. ráðherra skipta svolítið um kúrs í seinni svörum og opna á að hugsanlega gæti Alþingi náð samstöðu um þetta og sent þannig boltann til formanns hv. efnahags- og viðskiptanefndar. Það stefnir í að þetta verði eitthvert verkminnsta löggjafarþing á síðari tímum vegna þess að ríkisstjórnin hefur eiginlega kálað öllum sínum málum í bili en ég held að það sé algjörlega borðleggjandi að við höfum tíma, höfum svigrúm hér á þessum síðustu dögum, til að ná samstöðu um að framlengja ákvæðið um tollfrelsi. Við erum auðvitað alveg til viðræðu um — sums staðar hefur verið gripið til (Forseti hringir.) einhvers konar mótvægisaðgerða til að koma til móts við aðila sem aðgerðir hafa með einhverjum hætti bitnað á. (Forseti hringir.) Ég held að það megi alveg ræða slíkt. Það sem skiptir mestu máli er að við sendum skýr skilaboð um að Ísland styðji ekki bara Úkraínu svo lengi sem það er ekkert óþægilegt við það. (Gripið fram í: Við erum að styðja Úkraínu.) Já, við erum að styðja Úkraínu (Forseti hringir.) en við gerum það ekki með því að láta þetta bráðabirgðaákvæði deyja út.
(Forseti (BÁ): Þingmaður hefur orðið.)
Við gerum það ekki þannig. Við þurfum að senda skýr skilaboð um að við styðjum Úkraínu jafnvel þótt það geti orðið óþægilegt á einhverjum tímapunkti.