samstaða um stuðning við Úkraínu.
Herra forseti. Ég ætla í sjálfu sér ekkert að orðlengja þetta frekar. Sjónarmið þess hóps sem skammast sín fyrir þessa afstöðu stjórnvalda hafa komið skýrt fram hér. Mig langar bara til að segja eitt: Ég hélt í gær, þegar ég ræddi þetta í eldhúsdagsumræðum, að það gæti ekkert verið verra en að gæta þröngra sérhagsmuna á þennan hátt. En ég er eiginlega komin á þá skoðun að það sem er verra sé að þora ekki að stíga fram og fela sig á bak við þingið með það sjónarmið. Ég er eiginlega bara slegin yfir þessum aumingjaskap. En ég hvet þá sem standa í vegi fyrir þessari framlengingu, ég hvet þá sem standa í vegi fyrir því að við stöndum við stóru orðin, til að koma fram og reyna a.m.k. að rökstyðja málið.