samstaða um stuðning við Úkraínu.
Herra forseti. Mig langar bara að benda virðulegum forseta á að hann hefur lausn þessa máls í höndum sér. Hann hefur í höndum sér leið til að kalla saman fólkið sem stendur í vegi fyrir áframhaldandi stuðningi við úkraínsku þjóðina. Hann hefur það í höndum sér að gera einfaldlega hlé á þingfundi hér seinna í dag til að veita stjórnarflokkunum tækifæri til að halda sameiginlegan þingflokksfund þar sem þeir geta náð þeirri samstöðu sem skortir í þeirra röðum og hvergi annars staðar. Samstaðan með úkraínsku þjóðinni þarf kannski ekki að vera meiri en að þessir þrír flokkar setjist saman yfir kaffibolla og tali saman um það hvort þeir vilji styðja Úkraínu eða ekki.
Ég legg til við virðulegan forseta að bregða aðeins út af dagskrá þessa fundar í dag, gefa okkur hálftímahlé til að flokkarnir þrír geti sest saman og ákveðið hvort þeir ætli að standa með Úkraínu eða ekki.