153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:15]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Það er barist fyrir lýðræðið í Evrópu á vígvelli sem er ekki langt héðan og við hér inni ætlum að láta einhverja hagsmunapólitík ráða því að við stöndum ekki með þeim sem eru að berjast fyrir okkur. Ef við þurfum að bæta þessum hagsmunaaðilum eitthvað upp til að geta sýnt að við stöndum með Úkraínu, af hverju gerum við það ekki? Af hverju setjumst við ekki niður og finnum lausn á þessu og það strax?

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Andrési Inga Jónssyni, að við gerum hlé til að finna lausn á þessu máli. Allt annað er skömm.