samstaða um stuðning við Úkraínu.
Virðulegur forseti. Mér þótti margt í ræðu hæstv. utanríkisráðherra hér áðan ágætt en mig tekur það sárt að hún skuli ekki standa í lappirnar og láti beygja sig í þessu máli. Hún nefndi að Úkraínumenn væru ekkert að óska eftir pening. Þeir eru ekki að biðja um neina ölmusu og ég veit að ef við sendum þeim pening þá fer það bara í að kaupa skriðdreka. Það sem þeir hafa verið að biðja um er að við hjálpum þeim að halda hjólum atvinnulífsins gangandi. Þeir þurfa að láta samfélagið sitt ganga með því að atvinnulífið geti selt sínar afurðir. Evrópa öll og við jafnframt vorum tilbúin til að taka þátt í því og styðja við það. Mér þykir það lágkúrulegt að við ætlum ekki að halda þessu áfram. Ég segi bara, virðulegur forseti, að það er algjör aumingjaskapur ef við ætlum að falla frá þessu.