samstaða um stuðning við Úkraínu.
Herra forseti. Mér finnst þessi málflutningur hér nokkuð sérstakur. Hér er talað um aumingjaskap og skömm yfir því að flytja ekki inn kjúkling frá Úkraínu. Ég vil segja, herra forseti, um innflutning á kjúklingi frá Úkraínu: Aðstoð okkar Íslendinga til Úkraínu stendur ekki og fellur með kjúklingi. Ég hef farið tvisvar sinnum til Úkraínu á stríðstímum með hjálpargögn og ég veit algerlega hvar þörfin er mest. Hún er t.d. gríðarlega mikil í stoðtækjum sem íslenski framleiðandinn Össur framleiðir. Við höfum stutt við Össur. Össur hefur fengið 200.000 evrur frá ríkissjóði og við gætum stutt enn frekar við bakið á þeim þar.
Mér finnst þessi málflutningur bera þess vitni að menn setji sig ekki inn í málin. Við erum búin að aðstoða Úkraínu heilmikið og við getum verið stolt af því. Við tökum vel á móti flóttamönnum. Við höfum tekið á móti yfir 100 heyrnarlausum flóttamönnum, meira en allar Norðurlandaþjóðirnar til samans. (Forseti hringir.) Við höfum staðið okkur vel. Aðstoð okkar stendur ekki og fellur með innflutningi á kjúklingi. (Forseti hringir.) Við verðum líka að hugsa til þess að setja ekki okkar eigin landbúnað í vanda. En við eigum samt að styðja við bakið á Úkraínu. Við gerum það og við höfum gert það vel og eigum að vera stolt af því.