153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:21]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Nú er myndin kannski pínulítið að skýrast. Það er alveg rétt að við höfum gert margt vel í stuðningi okkar við Úkraínu. En þegar í ljós kemur að sá stuðningur er bundinn við fjárhagslega hagsmuni — ekkert einhverjar háar upphæðir, ekkert einhverjar stórkostlegar upphæðir, heldur bara bundinn við þessa sérhagsmuni — og þegar stuðningnum lýkur þá dregur það úr trúverðugleika okkar. Það er bara svoleiðis.

Og nú er það þannig að þetta snýst ekkert bara um það hvar stuðningsins er mest þörf. Við höfum oft talað um það að stuðningur Íslands er líka táknrænn. Hann er samstaða með því að þarna er þjóð sem er að verja okkar eigin gildi. Ég held að það færi vel á því að við myndum nýta þá tvo daga sem eftir eru til að koma málinu hér á dagskrá. Það er ekki gott að það hangi einhvern veginn í loftinu (Forseti hringir.) að við séum bara til í að gera sumt en ekki allt. Það er ekki eins og hér sé atvinnugrein (Forseti hringir.) að fara á hausinn. Það er ekki þannig. Þetta eru 2 eða 3 eða 4% (Forseti hringir.) af heildarmagninu. Þetta er ekki meira en það.