samstaða um stuðning við Úkraínu.
Herra forseti. Hingað kemur í pontu þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og það er þakkarvert, sem svarar kalli og útskýrir afstöðu sína, reyndar með því að við sem hér höfum gagnrýnt þessa framkomu stjórnvalda skiljum ekki málið, að afkoma Úkraínu standi ekki og falli með þessu. En ég er líka með fréttir: Afkoma íslensku bændastéttarinnar stendur heldur ekki og fellur með þessu. Það er svo einfalt að hún snýst ekki um örfáa kjúklinga. Landbúnaðurinn okkar stendur á miklu styrkari grunni. Eins og ég hef skilið málflutning þess flokks sem hv. þm. Birgir Þórarinsson talar núna fyrir þá skilja menn þar býsna vel gangverk atvinnulífs, mikilvægi þess og mikilvægi þess að fólk sé sjálfs síns herrar, mikilvægi þess að fólk fái tækifæri til að sjá fyrir sjálfu sér, mikilvægi þess að vera ekki ölmusuþegar, mikilvægi þess að vera ekki á framfæri hins opinbera þegar ekki er þörf á, mikilvægi þess að fyrirtæki gangi, mikilvægi þess að markaðurinn virki. (Forseti hringir.) Allt þetta vill hann núna klippa á þegar kemur að (Forseti hringir.) aðstoð við Úkraínu af því að hann er hræddur við nokkur hundruð, mögulega nokkrar þúsundir (Forseti hringir.) úkraínskra kjúklingabringna. Það er aumkunarvert.