153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:24]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hér áðan kom hv. þm. Birgir Þórarinsson upp og sagði: Ja, við skulum ekki að vera að styðja við fyrirtækin heldur skulum við frekar gefa meira til Össurar. Þetta er akkúrat öfugt við það sem öll hjálparsamtök hafa sagt undanfarinn áratug og ef hv. þingmaður hefði farið til jafn margra hamfarasvæða og ég og hefði fylgst betur með þessum hlut þá vissi hann að grundvallaratriðið er að styrkja það sem er að gerast í landinu, styrkja þær stofnanir og fyrirtæki og annað þar. Ef við gefum til Össurar hefur það áhrif á íslenska efnahaginn vegna þess að stór hluti af þeim peningum fer til Íslands. Ef við hins vegar opnum á að flytja eitthvað inn hérna þá erum við að styðja við efnahaginn í Úkraínu. Þetta er grundvallaratriði sem var samþykkt af öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna 2016. (Forseti hringir.) En þetta er ekki bara um það hvert peningarnir fara, þetta er líka mjög mikilvægt merki sem við erum að gefa, ekki bara til Úkraínu heldur heimsins alls og þá sérstaklega Rússlands, um hvar við stöndum.