samstaða um stuðning við Úkraínu.
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir mál hv. þingmanns Pírata, nýjustu rannsóknir í þróunarhagfræði segja einmitt að til þess að hjálpa sé einmitt best að styðja við það sem er að gerast nú þegar í því ríki. Íslenskur landbúnaður stendur ekki og fellur með kjúklingabringum og ef við höldum að við séum í svo viðkvæmri stöðu að við megum ekki við því að missa þessar kjúklingabringur þá finnst mér það heldur vandræðalegt. Landbúnaður Íslands er dínamískur og mér finnst við alveg geta treyst á að þau muni redda sér, því að þetta reddast alltaf hér. Ég vil koma með skilaboð frá minni kynslóð sem mun fylgjast með sögunni gerast næstu 100 ár. Þetta verður erfitt að skrifa niður í sögubækurnar. Ég vil endilega hvetja formann efnahags- og viðskiptanefndar; við skulum bara vinna að þessu og fara í hádegismat saman. Við skulum spjalla um þetta. Við getum alveg gert þetta.