samstaða um stuðning við Úkraínu.
Virðulegur forseti. Ég hef verið að hlusta á þessa umræðu hér í morgun og ég held að það sé mjög mikilvægt að halda því til haga að við höfum gert afar vel í stuðningi við Úkraínu. Hér hafa verið samþykktar stórar gjafir til þessarar þjóðar sem er stríðshrjáð og við eigum að halda því áfram. Ég held að það sé mjög gott að allur sá stuðningur sem kemur frá Íslandi komi úr sameiginlegum sjóðum eða frá okkur sameiginlega. Að við séum að rífast um það hvort einhverjir kjúklingar til eða frá bjargi málunum finnst mér mjög meiðandi umræða vegna þess að við viljum öll gera vel og við viljum öll gera betur. Ég held að það færi betur á því, ef við viljum styðja úkraínska bændur, að við gerum það með því að styðja bændur en ekki kaupa kannski kjúklinga af einhverju einu fyrirtæki eða svo. Ég veit að íslenskir bændur væru tilbúnir til að styðja kollega sína í Úkraínu í þeim miklu þrengingum sem þeir eru í og það viljum við öll gera.