153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:28]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Herra forseti. Þetta er alveg ótrúlegur málflutningur hjá Pírötum sem vilja ekki styðja Úkraínumenn, hermenn sem hafa misst útlimi, með því að styrkja stoðtækjaframleiðandann Össur. Það er gríðarleg þörf fyrir stoðtæki frá Össuri í Úkraínu. Ég þekki það af eigin raun. Ég hef farið á hersjúkrahús, ég hef rætt við hermenn sem hafa misst útlimi. Það vantar gríðarlega aðstoð frá Össuri á þetta svæði. Ríkissjóður getur komið inn í það verkefni og það skiptir máli. Ég og hv. þm. Jakob Frímann Magnússon áttum fund með aðilum í Bandaríkjunum sem tengjast hersjúkrahúsi í Úkraínu og þeir sögðu einmitt akkúrat þetta, að það sem vantaði til Úkraínu væru stoðtæki frá Össuri. Pólland, sem hefur stutt gríðarlega vel við bakið á Úkraínu, bannar allan innflutning á landbúnaðarvörum frá Úkraínu. Kjúklingurinn sem kemur til Íslands fer í gám á landamærum Póllands og Úkraínu. Hann er innsiglaður og það eru eftirlitsaðilar sem fylgjast með því að (Forseti hringir.) allur kjúklingurinn sem fer í gegnum Pólland fari ekki á markað í Póllandi. Er þetta skömm og aumingjaskapur Pólverja? Ég spyr. (Forseti hringir.) Svarið þið nú.