153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

samstaða um stuðning við Úkraínu.

[12:30]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég heyrði engan þingmann Pírata halda því fram að við ættum ekki að senda stoðtæki til Úkraínu og frábið mér þann málflutning. Það er einfaldlega ekki rétt. Það sem er hins vegar vert að benda á, burt séð frá því hversu oft hv. þm. Birgir Þórarinsson hefur farið til Úkraínu, er að það breytir ekki þeirri staðreynd — og þetta beinist líka að hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni — að það eru úkraínsk stjórnvöld sem hafa beðið um nákvæmlega þetta. Það er ekki okkar að segja: Heyrðu, við skulum frekar styðja bændur í Úkraínu. Bónin sem kemur frá Úkraínu er: Viljið þið hjálpa okkur að flytja vörurnar okkar úr landi til þess að hjólin í okkar atvinnulífi geti haldið áfram að snúast, þannig að við getum haldið áfram að fúnkera þrátt fyrir allt sem er í gangi? Mér finnst að við þurfum að taka tillit til þeirrar skýru óska sem hafa komið frá þeim en ekki ákveða fyrir þau hvað þeim er fyrir bestu. Það er nú bara forræðishyggja af verstu sort.