samstaða um stuðning við Úkraínu.
Hæstv. forseti. Hér erum við með tvo þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem hafa einmitt verið að tala um að styðja ekki við efnahagslíf þjóða sem eru í stríði og ég hvet þá endilega til að fara á fund vina minna hjá Sambandi ungra sjálfstæðismanna, því þetta er pínu skrýtið og pínu tímaskekkja og ég vil hvetja þá til að endurhugsa sína eigin stjórnmálahugmyndafræði um stuðning við atvinnulíf. Einnig langaði mig að nefna það að hér er nefnt að við séum að gera nóg. Við erum ekki að gera nóg og það verður komið nóg þegar það er kominn friður. Það er verið að sprengja fólk upp. Þetta er ekki í lagi og við í Evrópu segjum: Það er komið nóg þegar það er kominn friður og Úkraína verður aftur sjálfstæð.